Skilmálar
Seljandi er Gjaldþrot ehf., kt. 690715-0310, VSK-nr. 121163, Eyjarslóð 7, 101 Reykjavík. Fyrirspurnir sendist á [email protected].
Verð og greiðsla
Öll verð eru í íslenskum krónum. Veðurkortin eru listaverk og ekki er innheimtur virðisaukaskattur af þeim. Sendingarkostnaður bætist við og kemur fram áður en greitt er. Greitt er með greiðslukorti hjá Teya. Pöntun er staðfest þegar greiðsla hefur borist, og þá færð þú kvittun í tölvupósti.
Afhending
Hvert kort er prentað eftir pöntun. Pantanir eru að jafnaði sendar af stað innan 1–3 virkra daga og afhentar með Póstinum eða sóttar. Ef afhending tefst látum við þig vita.
Varan er á okkar ábyrgð þar til hún hefur verið afhent þér. Ef kort skemmist eða týnist á leiðinni, hafðu samband og við prentum nýtt.
Skilaréttur
Kortin eru sérsniðin að þinni ósk, með þeirri dagsetningu og þeim texta sem þú velur. Því gildir ekki 14 daga skilaréttur um þau, sbr. 18. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga.
Gallar
Ef kortið er gallað, t.d. rangt prentað eða skemmt við afhendingu, átt þú rétt samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Hafðu samband sem fyrst og við prentum nýtt kort eða endurgreiðum.
Persónuupplýsingar
Um meðferð persónuupplýsinga fer eftir persónuverndarstefnu okkar.
Ágreiningur
Komi upp ágreiningur reynum við fyrst að leysa hann með þér. Þú getur einnig leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Um skilmálana gilda íslensk lög.
Síðast uppfært 20. nóvember 2026.