← Veðurkort.is

Persónuvernd

Vefirnir vedurkort.is og hananu.is eru reknir af Gjaldþroti ehf., kt. 690715-0310, Eyjarslóð 7, 101 Reykjavík. Spurningar um persónuupplýsingar sendist á [email protected].

Pantanir

Þegar þú pantar kort skráum við nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer, ásamt dagsetningu og texta kortsins. Upplýsingarnar eru notaðar til að prenta kortið, senda það og hafa samband vegna pöntunarinnar. Vinnslan byggir á kaupsamningnum.

Greiðslan fer fram hjá Teya. Greiðslukortaupplýsingar fara beint til þeirra og berast okkur aldrei.

Ef þú slærð inn netfang í pöntunarferlinu en klárar ekki pöntunina, eða greiðslan klárast ekki, gætum við sent þér eina áminningu með hlekk til að halda áfram. Fleiri áminningar eru ekki sendar.

Hverjir fá upplýsingarnar

Við seljum aldrei persónuupplýsingar.

Póstlisti

Ef þú skráir þig á póstlistann sendum við þér stöku sinnum tölvupóst um ný kort og tilboð. Það sama á við um þá sem kaupa kort, nema þeir taki hakið af í pöntunarferlinu. Við geymum netfangið ásamt því hvenær og hvar það var skráð. Afskráningarhlekkur fylgir hverjum pósti.

Varðveisla

Pantanir og reikningar eru geymd í sjö ár, eins og bókhaldslög krefjast. Annað er ekki geymt lengur en þörf er á.

Vafrakökur

Vefurinn geymir körfuna og val þitt um vafrakökur í vafranum þínum. Það er nauðsynlegt svo vefurinn virki.

Með þínu leyfi notum við líka Meta Pixel til að mæla árangur auglýsinga á Facebook og Instagram. Hann er óvirkur nema þú leyfir hann, og þú getur skipt um skoðun hvenær sem er:

Ekkert valið.

Ef villa kemur upp á vefnum er lýsing á henni send til Sentry svo hægt sé að laga hana.

Réttindi þín

Þú getur fengið að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig og beðið um að þær séu leiðréttar eða þeim eytt, nema okkur sé skylt að geyma þær lögum samkvæmt. Sendu þá póst á [email protected]. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar.

Síðast uppfært 20. nóvember 2026.